Hvaðan koma tölurnar í launareiknivélinni — og hversu traustar eru þær.
Áreiðanleiki heimilda
Tryggingagjald
Opinber tala6,35%
Skatturinn (2026) — opinber tala fyrir árið.
Gjaldstofn tryggingagjalds
LögSkattareglur: gjaldstofninn nær yfir öll greidd laun auk mótframlaga í lífeyrissjóð.
Mótframlag í lífeyrissjóð
Lög11,5%
Lög nr. 129/1997 — lágmarksmótframlag atvinnurekanda.
Mótframlag í séreign
Kjarasamningur2%
Kjarasamningar — algengt mótframlag 2–4%, valkvætt.
Önnur launatengd gjöld
Kjarasamningur1,65% (VR)
Sjúkrasjóður, orlofssjóður, fræðslusjóður og VIRK (0,10%) — forstillast fyrir yfir 100 stéttarfélög út frá gjaldskrám í Payday launareiknivélinni (ágúst 2026), t.d. VR/Efling 1,65%, Byggiðn 1,85%, RSÍ 2,45%. Launagreiðandi greiðir í sjóðina skv. kjarasamningi óháð félagsaðild starfsmanns (l. 55/1980).
Stéttarfélagsgjald starfsmanns
Kjarasamningur0,05–1,5%
Gjaldskrár yfir 100 stéttarfélaga (Payday, ágúst 2026): VR og Efling 0,7%, flest verkalýðsfélög 1%, kennarafélög 1,4%. Dregst af launum starfsmanns og hefur ekki áhrif á kostnað launagreiðanda. Forstillanlegt í reiknivélinni.
Persónuafsláttur
Opinber tala72.492 kr./mán.
Skatturinn 2026. Hlutfallanlegur í reiknivélinni — fullur, hálfur eða enginn, t.d. þegar afsláttur er nýttur á móti öðru starfi.
Slysa- og launþegatryggingar
Eigin forsenda0,1% (stillanlegt)
Kjarasamningar skylda launagreiðendur til að slysatryggja starfsfólk; iðgjald er keypt hjá tryggingafélagi og er breytilegt eftir atvinnugrein, gróflega 0,05–0,3% af launum. Liður sem gleymist oft í kostnaðaráætlunum.
Dagpeningar og ökutækjastyrkur
Opinber talaskattfrjálst innan skattmats
Skattmat 2026: dagpeningar innanlands — fæði heils dags 17.500 kr., gisting og fæði 39.700 kr./sólarhring; ökutækjastyrkur 142 kr./km (að 1.000 km, lækkandi eftir það). Skattfrjálst aðeins á móti raunverulegum ferða- og aksturskostnaði í þágu launagreiðanda, gegn ferðauppgjöri/akstursdagbók — annars skattskyld laun. Bera hvorki staðgreiðslu né tryggingagjald innan viðmiða og teljast ekki til heildarlauna (endurgreiðsla kostnaðar) — birtast sem sérliðir á launaseðli og bætast við útborgun. Umfram viðmið teljast þeir til skattskyldra heildarlauna.
Uppbætur valkvæðar í eigin rekstri
KjarasamningurOrlofs- og desemberuppbót eru kjarasamningsbundnar og óumflýjanlegar fyrir almenna starfsmenn. Í eigin rekstri utan kjarasamninga má sleppa þeim við útreikning eigin launa — stillanlegt í reiknivélinni.
Orlofsuppbót
Kjarasamningur62.000 kr.
Kjarasamningar SA vs. SGS/VR — gildir frá maí 2026.
Desemberuppbót
Áætlun114.000 kr.
Áætlun út frá kjarasamningum 2024–2026.
Orlof tímakaupsfólks
Lög10,17%+
Orlofslög nr. 30/1987 — lágmark 24 dagar.
Kjarasamningsbundnar hækkanir
Kjarasamningur3,5% á ári · gólf 23.750 kr.
Stöðugleikasamningar SA og stéttarfélaga 2024–2028: almenn hækkun 3,25% í febrúar 2024 og síðan 3,5% 1. janúar 2025, 2026 og 2027 — að lágmarki 23.750 kr. í hvert sinn. Krónutölugólfið er reiknað inn í spána og lyftir hækkunum launa undir ~680.000 kr. Ár 4–5 í spánni ná út fyrir gildandi samninga og gera ráð fyrir óbreyttu framhaldi.
Launaskrið eftir starfsaldri
Nálgun3% → 0,5% á ári
Seðlabankinn metur að launaskrið bæti 40–75% ofan á samningsbundnar hækkanir (launavísitala umfram kauptaxta). Skriðið er mest fyrstu árin í starfi — stöðuhækkanir og endurröðun — og fjarar út með starfsaldri: <1 ár 3%, 1–4 ár 2%, 5–9 ár 1%, 10+ ár 0,5%.
Spátímabil og aðferð
Eigin forsenda5 ár · nafnlaun
Eigin forsenda: nafnlaunaspá án verðbólguleiðréttingar. Starfsaldur færist fram um ár í hverju skrefi og hefur áhrif á launaskriðið.
Miðgildi og fjórðungsmörk eftir starfi
Opinber talaHagstofa VIN02001 · uppfærist árlega
Grunnlaun fullvinnandi eftir starfi (ÍSTARF95), bæði kyn — um 270 störf í fjögurra þrepa stigveldi ásamt fjölda athugana og miðgildi greiddra stunda hvers starfs. Sótt beint úr gagnagrunni Hagstofunnar og uppfærist sjálfkrafa með nýjasta ári. Heildartalan („Allar starfsstéttir“) kemur úr töflu VIN02002, grunnlaun fullvinnandi hjá öllum launþegahópum.
Lágmarkslaun (lágmarkstekjutrygging)
Kjarasamningur473.485 kr./mán. frá 1.1.2026
Lágmarkstekjur fyrir fullt starf skv. kjarasamningum á almennum markaði: 402.235 kr. frá 1.11.2022, hækka um 23.750 kr. 1.2.2024, 1.1.2025 og 1.1.2026. Gildir fyrir starfsfólk 18 ára og eldri í fullu starfi.
Forsendur eru stillanlegar í launareiknivélinni.